Morfís; FSN vs. MH

MORFÍS stendur fyrir Mælsku- og rökræðukeppni framhaldsskóla á Íslandi.
Seinasta fimmtudag klukkan 20:00 hófst MORFÍS í FSN. Þetta var fyrsti heimaleikur FSN og einnig fyrsti leikur í 32-liða úrslitum í MORFÍS. Við kepptum á móti Menntaskólanum við Hamrahlíð sem hafði betur í þetta skiptið og vann með 199 stiga mun.
Saga FSN í MORFÍS er mjög stutt en lengist með árunum. Liðið okkar stóð sig mjög vel en það skipuðu Arngrímur Stefánsson, Hjörtur Steinn Fjeldsted, Jón Þór Einarsson og Rut Einarsdóttir.
Við þökkum öllum sem sýndu FSN stuðning á keppninni og mun þetta vonandi verða til þess að meiri áhugi skapist fyrir keppninni innan skólans.

Skoðanakönnun

Ætlar þú á busaballið?
 

Menn Vikunnar

Sigurvegarar Stingerkeppni NFSN

Heimir Þór Ásgeirsson

Guðmundur Ingi Gunnarsson


9/3/2010 - 16/3/2010