Gleðilegt nýtt ár!

Kæru nemendur, gleðilegt ár, takk fyrir það gamla og innilega velkomin aftur í skólann!

Eflaust eru allir voðalega spenntir fyrir því að demba sér í lestur og lærdóm en það má auðvitað ekki gleyma því að skemmta sér líka með náminu! :D Því skulum við öll hjálpast að og gera þessa önn að einhverri geðbiluðustu og skemmtilegustu skólaönn sem um verður talað í norður-evrópu að henni lokinni!!!

 

 

Fyrir utan reglulega brjáluð böll og kreisí kaffihúsakvöld verður allt troðið af atburðum og ef þú hefur ekki skemmt þér þegar sumarfríið tekur yfir varst þú klárlega ekki í FSN í vor!

“Ég sé fram á að þessi önn verði sú besta hingað til... Maður er ekkert lítið spenntur fyrir því að fara renna pussy-magnetinu aftur í stæðið fyrir utan gylltu bygginguna”

Davíð Magnússon, nemi við FSN.

 

Að sjálfsögðu byrjum við strax af fullum krafti enda verður sýnt leikritið Devotion hér í FSN ásamt námskeiði í hláturjóga í dag föstudaginn 8. janúar klukkan hálf-eitt.

“Leikritið er hrátt, fyndið, ögrandi og veltir upp hugmyndinni um hvenær leikur hættir að vera leikur og verður að alvöru. Það snertir einnig á viðkvæmum málum eins og einelti og annars konar ofbeldi og býður upp á tækifæri fyrir áhorfandann til að íhuga eigin skoðanir og hugmyndir hvað varðar ýmiss konar árekstra milli hópa og einstaklinga og þau vandamál sem þessir árekstrar geta valdið”

Kári Viðarsson, leikari.

Hálf-eitt í dag. – Be there or be square.

Jón Viðar.

 

Skoðanakönnun

Ætlar þú á busaballið?
 

Menn Vikunnar

Sigurvegarar Stingerkeppni NFSN

Heimir Þór Ásgeirsson

Guðmundur Ingi Gunnarsson


9/3/2010 - 16/3/2010