Stuttmynda-/ sketskeppni í FSN!

Halló halló, kæru nemendur!

Í lok febrúar verður haldin stórkosleg stuttmynda-/ sketskeppni í FSN! Það mega allir taka þátt og það verða alveg geðveik verðlaun í boði fyrir fyrstu 3 sætin!!!

Til þess að taka þátt þarft þú:

  1. UPPTÖKUVÉL eða MYNDAVÉL eða BLAÐ OG BLÝANT (Það getur bæði verið stuttmynd, stop-motion mynd eða teiknimynd). Einnig má taka upp brandara! Efnið verður að vera ferskt (eða frá því 2010 og ekki er leyfilegt að bjóða fram gamalt efni í keppnina!)
  2. LIÐ. Í liðinu mega vera 2-7 manneskjur (aðalleikarar meðal þeirra). En auðvitað er öllum velkomið að hafa aukaleikara!
  3. GÓÐ HUGMYND af sögu eða brandara!!!
  4. STUTTMYND, sem ekki er styttri en 2 mín og ekki lengri en 10 mín!!!

Bráðum verður skráningarblaðið hengt upp, en þangað til vil ég kveðja ykkur. :)

Alexandra Geraimova,
Formaður Ljósmynda- og Stuttmyndaklúbbsins Moviola.

 

Skoðanakönnun

Ætlar þú á busaballið?
 

Menn Vikunnar

Sigurvegarar Stingerkeppni NFSN

Heimir Þór Ásgeirsson

Guðmundur Ingi Gunnarsson


9/3/2010 - 16/3/2010