NFSN

Gettu Betur; FSN-MH

Skrifað af: Málfundafélag Föstudagur, 15. janúar 2010 08:37

Eins og flestir vita keppti FSN við MH í Gettu Betur síðasta mánudagskvöld, keppnin fór fram í Efstaleiti 1 en henni var einnig útvarpað á Rás 2

Lesa nánar: Gettu Betur; FSN-MH

 

Gleðilegt nýtt ár!

Skrifað af: Stjórn

Kæru nemendur, gleðilegt ár, takk fyrir það gamla og innilega velkomin aftur í skólann!

Eflaust eru allir voðalega spenntir fyrir því að demba sér í lestur og lærdóm en það má auðvitað ekki gleyma því að skemmta sér líka með náminu! :D Því skulum við öll hjálpast að og gera þessa önn að einhverri geðbiluðustu og skemmtilegustu skólaönn sem um verður talað í norður-evrópu að henni lokinni!!!

 

Lesa nánar: Gleðilegt nýtt ár!

 

Skólablaðið komið!

Skrifað af: Ritnefnd Fimmtudagur, 03. desember 2009 17:31

Eftir langa bið er skólablað ársins 2009 komið í hús !!!
Nældu þér í eintak í andyri skólans og athugaðu hvort að mynd af þér birtist á hinni margumtöluðu myndasíðu !
Eftir að þið hafið lesið blaðið spjaldanna á milli er ykkur velkomið að taka það með ykkur heim og sýna vel völdum :)

Vona að þið hafið gaman að því að lesa blaðið, og ef þið hafið einhverjar hugmyndir fyrir næsta blað megið þið endilega tala við mig eða aðra í ritnefndinni :)


Ritstjóri skólablaðs NFSN
Dagfríður Ósk Gunnarsdóttir

 

ÚT AÐ LEIKA!!!

Skrifað af: Íþróttaráð Sunnudagur, 29. nóvember 2009 23:57

Eflaust hefur það ekki farið framhjá neinum að það fáránlega mikill snjór úti allt í einu. NFSN nýtir auðvitað öll tækifæri til að hafa gaman hvort sem það eru litlir eða stórir atburðir og því ætla allir að fara út að leika í dag mánudaginn 30. nóvember!!!


Allir geta komið út að leika þegar þeir eru búnir að borða hádegismat og þeir sem eru í gati í fyrsta tíma eftir hádegi geta verið lengur úti að leika!!!

Í boði verður meðal annars SNJÓENGLAR og SNJÓKAST (sendi reglurnar í vefpósti) svo má auðvitað alltaf finna upp á einhverju nýju til að leika við!

Enginn aðgangseyrir, bara ókeypis gleði!!!!

MUNUM SVO ÖLL AÐ KLÆÐA OKKUR VEL, LEIKA OKKUR FALLEGA OG KOMA MEÐ GÓÐA SKAPIÐ JIBBÍ.

 

Morfís; FSN vs. MH

Skrifað af: Guðbjörg Soffía Magnúsdóttir Laugardagur, 21. nóvember 2009 15:27

MORFÍS stendur fyrir Mælsku- og rökræðukeppni framhaldsskóla á Íslandi.
Seinasta fimmtudag klukkan 20:00 hófst MORFÍS í FSN. Þetta var fyrsti heimaleikur FSN og einnig fyrsti leikur í 32-liða úrslitum í MORFÍS. Við kepptum á móti Menntaskólanum við Hamrahlíð sem hafði betur í þetta skiptið og vann með 199 stiga mun.
Saga FSN í MORFÍS er mjög stutt en lengist með árunum. Liðið okkar stóð sig mjög vel en það skipuðu Arngrímur Stefánsson, Hjörtur Steinn Fjeldsted, Jón Þór Einarsson og Rut Einarsdóttir.
Við þökkum öllum sem sýndu FSN stuðning á keppninni og mun þetta vonandi verða til þess að meiri áhugi skapist fyrir keppninni innan skólans.

 

JPAGE_CURRENT_OF_TOTAL

«FyrstaFyrri12NæstaSíðasta»

Skoðanakönnun

Ætlar þú á busaballið?
 

Menn Vikunnar

Sigurvegarar Stingerkeppni NFSN

Heimir Þór Ásgeirsson

Guðmundur Ingi Gunnarsson


9/3/2010 - 16/3/2010